30janúar

Akueryi hér við komum...

Jæjaaaa... þá fer að líða að Akureyri..

Þetta verður glimrandi að komast aðeins út fyrir höfuðborgina og upplifa smá bæjarsemningu á Akureyri.
Þrátt fyrir að þetta sé nú vinnuferð þá getur maður gert gott úr því með að labba aðeins um miðbæ Akureyrar og hafa það smá rómó líka.


Verst við þetta er það að ég var að uppgötva að ég missi af bolludag, sprengidag og öskudags stemningunni með börnunum.

Finnst það bara verulega leiðinlegt að fá ekki að skella þeim upp í grímubúninginn og  upplifa stemninguna með þeim samhliða því.

Við Gaui þurfum að fara að fiffa til búninga og þess háttar áður en að við leggjum í hann.

Við erum svo heppin að við ætlum að keyra leiðina og mun það eflaust taka 12 og 1/2 tíma.... þar sem að við erum ekki á nöglunum.

Dabbi er búinn að redda okkur íbúð á Akureyri þannig að ég þarf að fara að útbúa þemakvöld fyrir okkur á kvöldin. Karlar á nærbuxum með bjór í annari og fjarstýringuna í hinni ég í þernubúning með ryksuguna í hinni og dust kústinn í annari.. Já það er sumsé KALLAveldi þarna!!!

En við gerum bara gott úr því og vonumst til að þeir muni gera mig að prinsessu í ferðinni:)
30. janúar 2008 klukkan 11:32
Thelman Logadottir
2 athugasemdir
28janúar

Ég er búin að standast eitt áramótaheit!!

Haldið þið að ég hafi ekki bara útbúið sunnudagskaffi!
Ok eða laugadagskaffi fannst vera sunnudagur þennan daginn:)

Ég tók mig bara til og bakaði eitt stykki súkkulaðiköku og skinkuhorn með fjölskildunni... Ætla nú samt að gefa mér allan þennan heiður fyrir utan það að Gaui vafði inn skinkuhornunum.. En það var nú ég sem drullu mallaði allt saman.. þvílíka drullumalli ðað útbúa svona gerdeig!

Maður þarf að fara að gera tilraunastarfsemi fyrir afmælið í mars og hvað þá heldur stór afmælið í ár!
Já  maður er að verða 25 skooo...

Gunnhildur, Hrafnhildur, Isabella, Hafsteinn og Brynjar voru svo krúttileg að koma í smá kaffi, kökur og skingkuhorn til mín og svo var auddað Rúnan mín hjá mér.. Þeim þóttist öllum finnast þetta voða gott til að gera mig ánægða þrátt fyrir ágætlega brenda köku þar sem að hún var ekki tekin út eftir 2min eins og ég var búin að biðja Gaualing að gera á meðan að ég hljóp út í búð.. heldur leið korter frá 2min.. en þetta bragðaðist vonandi allt í lagi þrátt fyrir smá brunabragð haha..

Vinnan mín er alltaf jafn frábær og vinnufélagar mínir alltaf jafn ruglaðir! Nei þeir eru frábærir líka... Davíð syngur fyrir mig sí og æ þýsk stef úr ýmsum myndum sem ég kannast ekki við, Gaui elskan er duglegur að biðja mig að senda sms á netinu, Pálmi elskar þegar að ég set á mig Victoriu Secret, Sigga syngur Haleluja allan daginn og Fríða er dugleg að fara í ræktina. Hinir einstaklingarnir sitja aðeins fjær mér að tala um tölur dagsins.

Hvað er málið með Facebook? Ég er ekki alveg að skilja síðuna finnst hún fremur flókin! Ekki eins og Myspace-ið mitt sem að ég get farið inn á reglulega á daginn... en Facebokk?? Ekki alveg að skilja það apparat!
Enda var ég nú að heyra það í gær að þetta væri bara nýja einkamal.is og sá það í 60 min að það væri nú eitthvað bogið við þessa síðu þar sem að það væru njósnir þarna í gangi hmmmm..

Svo bara líður að því að farið er á Akureyri í rúma viku, Barcelona í rúma viku, hoppferð til sólarinnar í nokrar vikur, Oktoberfest í Þýskalandi og svo er byrjum við Gaui í Verðbréfamiðlun núna í næstu viku.. Þetta er geggjað ár framundan!HlæjandiHlæjandi

Nú er bara aðal vandamálið.. Ég þarf að fá svona aðhaldsmann mér við hlið til að segja neiiiii þú mátt eki borða þetta.... þú mátt bara borða þetta... hlauptu hringinn í kringum skrifborðið þitt.. gerðu 16 armbeyjur núna.. hoppa á hægri hendi, hoppaðu á vinsti hendi..

Hver bíður sig fram???

Þetta þarf að vera komið í lag fyrir 17 apríl og þá á ég að vera komin í svaka form!


28. janúar 2008 klukkan 20:56
Thelman Logadottir
6 athugasemdir
22janúar

Ótrúlegt að heyra þetta..

Heath Ledger var að finnast látinn aðeins 28 ára gamall.
Ég horfði á myndina 10 things I hate a bout U aftur, aftur og aftur bara vegna þess hvað mér þótti hann flottur.

Æji leiðinlegt svona

Læt fylgja með link inn frá www.people.com

http://www.people.com/people/heath_ledger/biography
22. janúar 2008 klukkan 17:19
Thelman Logadottir
1 athugasemd
14janúar

nýtt ár og nýjir og breyttir tímar framundan...!

Jæja... Þar sem að átið 2008 er gengið í garð þá veðru maður nú að leggja fyrir sig nokkur plön á nýju ári.

Ég er komin í stórt skref.. er að verða 21 árs.. já 21! Verð ekki deginum eldri. Svo lítið erfitt að halda sér á þessum aldri og fela allar hrukkurnar undir þessu meiki sem maður þarf að nota... Endalaus gullkrem til að hindra hrukkur, hrukkurkrem lífrænt ræktað og innflutt með Pólverjum, Botox með Jónínu Ben og ýmislegt fleira. Þetta er rosalega dýr kostnaður sem að fylgir þessu ásamt því að halda börnunum áfram unglegum. Felst ekki allt í menningunni í dag að vera sem unglegastur?

Brad Pitt með tárvot augu alla daga yfir hverri hrukku sem hann fær. En hann hefur þó efni á þessu annað en við "normal" fólkið.

Ég fyrst og fremst ætla að byrja á því að taka vinnuna með trompi og eru þar mjög skemtilegir tímar fram undan.. MJÖG skemtilegir. Enda elska ég vinnuna mína svo mikið að ég er meira að segja komin með manninn minn mér við hlið á skrifborð til þess að ég geti sint tíma með honum líka.

Síðan er það nr 2. Eyða tíma með barnaskaranum líka. Það er alltaf mikið lagt í að eiga góða tíma með börnunum.

Síðan má ekki gleyma því að vera í átaki... Núna ætla ég að sleppa hverju átakinu fyrir sig. Heldur ætla ég að skrá mig með eilífðar átak... Hvernig hljómar það kæra fólk!

Síðan er ég að sjálfsögðu eki þessi tíbíski Íslendingur með alla yfirdrætti og VISA skuldir á bakinu hjá mér... Hvað er málið með það... Nei úbs þarna fór ég aðeins fram úr mér þar sem að það hrannast inn skemtilegir miðar um lúguna.. Þeir ætla ekki að koma inn til mín oftar eftir þetta ár þannig að markmiðið er að losna við þessa litlu ljótu miða líka. Úff haldiði að það væri nú lúxusinn...

Og svo ætla ég að vera dugleg að baka og bjóða fólki í sunnudags kaffi... hahahaha já spennandi verður hver kemur fyrstur og hvenar...

En ég mun endilega vilja fleiri coment á það hvorslags átak maður á að taka sér á nýju ári...

14. janúar 2008 klukkan 12:40
Thelman Logadottir
Engin athugasemd
12febrúar

ný tilraun ný tilraun altaf að koma inn nýjum tilraunum hmmm....

vegna ófyrirsjáanlegra veikinda á heimilinu þá bara hreinlega var ekki hægt að byrja nýtt blogg eins og ég var búin að heita sjálfri mér í síðustu færslu.
Þannig að núna ætla ég að byrja á þessuUllandi

eins og er þá er maður ekki búinn að segja sálu frá þessu bloggi.
var meira að segja að spekulera hvort ekki væri sniðugt að læsa völdum færslum hmmmÓákveðinn
þar sem að maður er nú enginn súper penni þá kemur ekki jafn vel út fyrir mig og marga aðra að hafa opna færslu til að leyfa hverjum sem er að lesa hehe.

já þetta er nú allt stórar pælingar!!

Annars ætlar maður nú að fara að byrja í svaka átaki og fara að losa sig við blessuðu aukakílóin.
Þetta hreinlega bara gengur ekki lengur.
Og ekki nema en 5 mánuðir í brúðkaupið 070707...
Úfff eins gott að taka sig á.

Nú eru stórpælingar hér á bæ, erum að spekulera í að hafa þetta frekar litla athöfn bara og halda síðan bara upp á stórt brúðkaupsafmæli þegar að við komum aftur heima frá Horsens eftir nokkur ár:)
En allt saman eru þetta pælingar.
Er allavegana komin með sjúklega flottan kjól sem að ég ÆTLA mér að kaupa mér takk fyrir......!!!!!
Hannn er svo flottur að ég verð hreinlega bara að koma mér í formSvalur

Var að hugsa um að fara að halda svona matardagbók fyrir mig til þess að ég viti hverju ég er að koma ofan í mig (ekki það að ég eigi eftir að gefa mér nokkur tíma í það eitthvern tímann)....
En allavegana reyna að kíla á það!

Svo þarf maður að fara að drulla sér í ræktina og svona aftur.
Allar ábendingar og ráðlegginar vel þegnar(",)

Jæjs fyrsta færslan er þá komin á blað(tölvuskjá) loskins.
Bíð spent eftir að sjá hvenar að ég kem næstu inn:)


12. febrúar 2007 klukkan 10:52
Thelman Logadottir
1 athugasemd
13október

Byrja upp á nýtt á nýjum stað

Var að hugsa um að byrja þetta blogg mitt upp á nýtt á nýjum stað.

13. október 2006 klukkan 05:06
Thelman Logadottir
Engin athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Leikur dagsins

Undirsíðukubbur